20.4.06

Og gleðilegt sumar!

Það stendur nú ekki til að breyta þessari síðu í svona tyllidagablogg þar sem ekkert gerist nema við sérstök tækifæri en hér kemur samt sumarkveðja. Það er ágætis tilbreyting að vera einu sinni í sumarveðri á sumardaginn fyrsta en ekki hagléli eins og ég man að byrjaði einu sinni í þriðja takti af "Ó blessuð vertu sumarsól"!

Það er verst hvað svona veður hefur slæm áhrif á einbeitingu...

Ég ætla í golf á morgun, hér verður gefin nákvæm skýrsla eins og vera ber!