8.1.07

Gleðilegt ár, þó seint sé!

Það má heita óskrifuð og óformleg regla (nema hvað nú er ég að skrifa hana niður...) á þessari síðu að ég uppfæri eiginlega bara í Danmörku. Þegar ég er á Íslandi hitti ég fólk í eigin persónu og get sagt fréttir augliti til auglitis og á ferðalagi annarsstaðar er ég upptekinn við að vera á ferðalagi. Það ætti því ekki að koma nokkrum manni á óvart (a.m.k. ekki þegar þetta hefur verið lesið) að ég lét þessa síðu alveg eiga sig á meðan ég var á Íslandi yfir jólin. En nú er ég kominn til Danaveldis á ný og hef aftur hafist handa við að gammablossast af miklum móð. Og í framhaldinu hefst svo kórsöngur, fótbolti, golf, hlaup og stjörnuskoðun að ógleymdu trompetspili að sjálfsögðu (það fór nú ekki í mikið frí). Og ég er örugglega að gleyma einhverju...