11.11.06

Danir eru ótrúlegir!

Ég ákvað áðan að fara á bar á Strikinu til að horfa á enska boltann þar sem mig var farið að vanta fótbolta í blóðið. Þar keypti ég það allra dýrasta glas af kóki sem ég hef nokkurntíma heyrt um, hvað þá drukkið, og kom síðan út eftir leikinn álíka vel reyktur og gott hangikjötslæri! Maður sá varla skjáinn í 5 metra fjarlægð!

Og nú er ég með blóðhlaupin augu eins og skrímsli í hryllingsmynd.