Það er undarlegur fótboltadagur í dag!
Það gerist yfirleitt aðeins tvisvar sinnum á ári (getur farið upp í fimm til sex skipti með rosalegum tilviljunum) að ég haldi með Liverpool í fótboltaleik en í dag er einn slíkur dagur. Ástæðan: Þeir eru að spila við ManUre (einnig þekkt sem Manchester United). Ég held alltaf með andstæðingum þess ömurlega svindlaralýðs, hvað sem mér finnst um þá (andstæðingana) aðra daga ársins (ég myndi þó trúlega gera undantekningu ef þeir mættu KR, en það er svo ólíklegt að það þarf ekkert að velta því fyrir sér;)). Í öðrum fótboltafréttum er það að Leeds spilar við Sheffield Wednesday og þeir VERÐA að vinna ef þeir ætla að eiga raunhæfan möguleika á að bjarga sér frá falli í það sem einu sinni hét þriðja deild (var svo breytt í aðra deild þegar efstu deildinni var breytt í úrvalsdeild og fyrir tveimur árum var svo ákveðið að næst efsta deildin skyldi heita Championship og deildin þar fyrir neðan heitir þá fyrsta deild!)! Ekki gott mál...

<< Home