13.12.06

Ái!

Ég er með hryllilegar harðsperrur. Ég tók nefnilega upp á því í gær að fara á fótboltaæfingu hjá Øresundskollegiets Fodboldklub og taka á öllu sem ég átti (til þess að vera ekki langlanglanglélegastur!) í skítakulda sem gerði strax að engu allt sem hét upphitun. Ég er ennþá algerlega búinn að vera! Þetta félag er með sex (mjög misgóð) lið í Kaupmannahafnarhluta dönsku utandeildarkeppninnar svo það ættu að vera sæmilegir möguleikar á að fá eitthvað að spila einstöku sinnum. Nú er bara að sjá hvernig gengur!

11.12.06

Spurning:

Hvað gerist þegar trompetleikara og organista er sleppt lausum í stórri nótnabúð í París?

Svarmöguleikar:
a: Þau kaupa ekki neitt, bara skoða.
b: Þau kaupa eitt lítið verk.
c: Þau kaupa nokkur lítil verk eða kannski eitt stærra.
d: Þau kaupa alla búðina...

Aukaspurning:

Hvern langar að búa í íbúðinni beint fyrir ofan orgelið (Danska kirkjan í París er með íbúðum fyrir starfsfólk kirkjunnar) þegar þau sleppa sér alveg í að spila í gegn um bunkann?

6.12.06

Tónleikar:) Og París:)

Nú er ég að leggja af stað í Samuelskirke þar sem Staka og Mpiri (færeyskur kór) halda sameiginlega jólatónleika klukkan 20:00. Og svo þarf ég að fara heim og pakka niður því í fyrramálið flýg ég til Parísar og ætla að vera þar yfir helgina:) Guðný á nefnilega afmæli á morgun svo það er alveg nauðsynlegt að drífa sig í heimsókn:):):):)