25.1.07

Stjörnuskoðunarferðin ógurlega...

Svo lesendur frá orgelstelpunni fari ekki fýluferð er víst rétt að hér komi fram hvað gerðist þegar þrír vaskir Íslendingar fóru út að skoða stjörnur í kóngsins Kaupinhafn í gærkvöldi. Um leið og lagt var af stað frá kollegíinu (hvar eigandi stjörnukíkisins er til heimilis) fór fólki að verða kalt svo gengið var afar rösklega að vatni í nágrenninu (engin götuljós úti á vatninu = betra myrkur = stjörnur sjást betur). Þar var kíkinum komið fyrir og hófst undirritaður handa við að reyna að fá hann til að sýna viðstöddum eitthvað annað en myrkur (stjörnur til dæmis), á meðan aðrir nærstaddir skulfu sér til hita. Skemmst er frá því að segja að þær tilraunir báru engann árangur og var því gengið til baka (rösklega, í þeirri von að þiðna á leiðinni) og ákveðið að reyna aftur síðar. Talið er að meirihluti viðstaddra hafi farið beint undir sæng þegar heim var komið.

Endir.